rok og rigningBjarney Stella Kjartansdóttir

Erum bara nokkuð sátt við veruna hér á Rauðarárstíg Stella bætir við batan eftir aðgerðina jafnt og þétt .En ekki er hugað að heimferð fyrr en í fyrsta lagi eftir áramót annars ekkert ákveðið í því máli.
Stelpurnar eru orðnar ansi heimfúsar og allt útlit á að þær verði farnar á undan okkur í skóla og vinnu heim .Viljum senda öllum bestu óskir um gleði og gæfuríkt komandi ár og þakka liðin.
Kveðja Stella Einar og dætur

ekki góð jólagjöfBjarney Stella Kjartansdóttir

Reykjavík.17/12/07.Kæru vinir og kunningjar sem þetta lesið og lásuð það sem frá okkur fór á meðan að á Kaupmannahafnardvölinni stóð verðið að fyrirgefa okkur það að láta ykkur halda að allt gengi hið besta hjá Stellu sem reyndar er raunin þegar bara er talað um lifrarígræðsluna og vissum við ekki betur frá 22/11-10/12.Þann 10 des fengum við þær fréttir að í upphafi lifrarskiftaaðgerðinnar hefðu sést víða í kviðarholinu agnar smáar vísbendingar um meinvörp frá lifraræxlinu sem var orðið mjög stórt,aðgerðinni var þá slegið á frest í klukkustund og sýni skoðuð til að ákvarða um framhald aðgerðarinnar ekkert sást í þeim ransóknum svo að aðgerðin var kláruð.En síðar voru gerðar nákvæmari athuganir á þessu og sáust þá greinilega frumubreitingar af sama stofni og voru í lifrinni .Þetta voru okkur ákaflega þungbær tíðindi og ákváðum í sameiningu og með séra Þóri Jökli okkur til ráðgjafar að halda þessu fyrir okkur sem þarna vorum saman komin á spítalanum þar til við gætum sjálf sagt stelpunum okkar frá þessu öllu saman.Um þetta er svo sem ekki margt að segja annað en það að þessi afbrigði af meinvörpum hafa ekki sést áður svo vitað sé og það eina sem vitað er með vissu er að þarna er um hægvaxta frumubreytingar að ræða sem ekki er talið skynsamlegt að meðhöndla á nokkurn hátt heldur fylgjast náið með “koma tímar koma ráð”og ef litið er á björtu hliðarnar þá fékk Stella nýja lifur sem gefur henni kost á að takast á við það sem framtíðin ber í skauti sér annars hefði enginn framtíð verið í boði.Hjartans þakkir ennþá einu sinni fyrir allt.Sendum ykkur óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.Stella og Einar.

lokabloggBjarney Stella Kjartansdóttir

Rigshospital.12/12/07. Þá er það ákveðið,saumarnir verða teknir úr Stellu á morgun og að því er við best vitum eigum við bókað flug til Keflavíkur á laugardag .Þannig að ef ekkert fer úr skorðum verðum við á Íslandi þann 15/12 hvað sem þar tekur við kemur bara í ljós.Ef allt fer sem horfir þá er ég hættur þessu blekbulli” þar sem aldrei er notað neitt blekið” nema eitthvað sérstakt gerist.Bestu þakkir fyrir alla umhyggjuna sem okkur hefur verið sýnd og líka þolinmæðina við að lesa gegnum bullið sem lendir alltaf með almennum fréttum.Kveðja Stella og Einar.

blíðuveðurBjarney Stella Kjartansdóttir

Rigshospital. 11/12/07. Það rann upp þriðjudagur í morgun hér eins og heima á Íslandi, merkilegt nokk, og hérna horfum við á sama tungl og þið heima en samt erum við alsekki heima en það líður óðum að því að við getum tiltekið fastan dag til heimferðarog eru þeir hérna farnir að horfa á vambarsauminn á henni Stellu með það að markmiði að taka hann úr.Bestu kveðjur ..Stella og Einar..

dumbungsveðurBjarney Stella Kjartansdóttir

Rigshospital 10/12/07 Hér mallast dagarnir áfram með ákaflega stóískum hraða og er það helst að frétta að í gærkvöldi héldum við einskonar Norðfirðingafélagsjólahlaðborð (langt orð) hérna á tólftu hæðinni ( deild..2,12,4  ) , við þessi sem þykjumst vera hraust fórum á litla Ítalska staðin sem við höldum öll svolítið upp á og sóttum T bone steikur og grillaða kjúklingabringu ásamt frönskum og tilheirandi kokteilsósu sem var hrist út úr deildarísskápnum.Þessu var svo af 3/5 hlutum hópsins skolað niður með dýrindis rauðvíni sem Sjöfn sá um að smygla innanklæða hér upp á setustofu”ekki það að danskinum þykji slíkt athugavert”en þetta var samt svona , eftirrétturin var svo kaffi og jólakonfekt.Bestu kveðjur og þökkum enn og aftur vinalegar kveðjur og ummhyggju.Stella og Einar.

hressir gestirBjarney Stella Kjartansdóttir

Rigshospital 09/12/07 Við ætlum að byrja á því að óska henni Unni Elínborgu litlu systur minni til hamingju með fertugsafmælið,og biðjast jafnframt afsökunnar á því að geta ekki ruðst inn til hennar og troðið sig út af kræsingum sem ég er viss um að nóg er af ef að vanda lætur.Að öðru leiti en því að eiga litla systur sem orðin er fertug er héðan allt gott að frétta og hlutirnir ganga sinn vanagang.Núna rétt í þessu komu inn úr dyrunum mæðgurnar Anna Erla og Hildur til að reyna að draga Stellu með í Tívolí allavega fóru þær beint þangað en Stella nennti ekki.Bestu kveðjur Stella og Einar,

blíða og sólBjarney Stella Kjartansdóttir

Rigshospital,08/12/07. Það er sama sagan hér og annarsstaðar að tíminn líður stundum hratt stundum hægt en stöðvast aldrei hvað sem á dynur, því er það svo miklu betra þegar þannig háttar sem nú að finna tímann vinna með sér sem er augljóst þegar maður horfir á batan sem kemur nú hægt og örugglega yfir þær stöllur Möttu og Stellu.En um mig er varla hægt að segja annað en tíminn vinni með mér því ég blæs út eins og púki á fjósbita hjá orðljótri mjaltakonu og er að ná fullkomnum tökum á því að gera ekki neitt.Hér er vetrar blíða upp á Danskan stíl og vaxandi jólastemming. Kv . Stella og Einar

Rigning í grendBjarney Stella Kjartansdóttir

Rigshospital 07/12/07. Ekki ætlar hún Stella að útskrifa sig þessa vikuna það ákvað hún áðan í samráði við deildarlækni hvort það er vegna þess að hún vill ekki að ég sleppi úr kústaskápnum eða hvort þetta er áhættufælnin sem er henni eiginleg ásamt áráttu til að taka skynsamlegar ákvarðannir skal ósagt látið, ætlar að skoða málið eftir helgi.Annars allt í fínasta farvegi okkar megin nema aðeins farið að votta fyrir samskonar mötuneitis fælni heilkenni og bjó um sig í okkur hér í vetur sem leið en er þó langt frá því að vera búið að ná hámarki.Bestu kveðjur Stella og Einar.

bara vera rólegurBjarney Stella Kjartansdóttir

Rigshospital. 06/12/07. Hér silast dagarnir áfram en virðast samt vera skila sínu í bataferlinu hjá henni Stellu sem er þess eðlis að það þarf bara heilmikin tíma til að klára málin þó allt gangi hið besta.Dagurinn í dag er okkur hinn besti blíðuveður og dagsformið um meðallag ásamt því að vera lyft upp með heimsókn konu að nafni Laufey Sveinsdóttir sem kom með kveðjur og glaðning  frá sjúkraliðunum á FSN kærar þakkir fyrir það.Annars allt við það sama sem er bara nokkuð gott.. Bestu kveðjur..Stella og Einar.

súldarveðurBjarney Stella Kjartansdóttir

Rigshospital 05/12/07. Heldur er nú þungbúið og drungalegt að líta út um gluggan í dag hálfgert 17 júní veður austan fíla og þokurumbungur en alls ekki kalt .Af Stellu er það að segja að hún heldur sínu striki og hefur verið flutt á stofu næst útganginum(augljós ábending “farðu nú”) en kannski hefur gærdagurin verið tekin með aðeins of miklu kappi því það eru ansi víða verkir í kroppnum sérstaklega bakinu og svo á að skifta út einni lyfjasort til að sjá hvort það geti lagað magaverki sem ekki hverfa af sjálfsdáðum en við bakverkjunum fékk hún feiki duglegt nudd hjá 260 punda sjúkraþjálfara ,,þeirri sömu og setti mig í leikfimina í gær,,og það gerði henni gott,.Er sjálfur tiltölulega verkjalaus eftir líkamsræktina og er kátur með það. Bestu kveðjur Stella og Einar.

Aðalvalmynd

Auglýsing